 Andstæðingar Akureyrarliðanna koma úr Reykjanesbæ og Hafnarfirði

| | 2. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarBikarveisla í KA-Heimilinu á laugardaginn - breytingEins og við greindum frá á þriðjudagskvöldið dróst aðallið Akureyrar á móti HKR-Handknattleiksfélagi Reykjanesbæjar í 32-liða úrslitum Eimskipsbikarsins og áttu Reyknesingar heimaleikjaréttinn. Það hefur nú orðið að samkomulagi að leikurinn verður leikinn á Akureyri næstkomandi laugardag klukkan 16:00 og verður leikið í KA-Heimilinu. Vegna kostnaðar við að leika í Reykjanesbæ sömdu liðin um að færa leikinn norður og bjóðum við liðsmenn HKR velkomna til Akureyrar.
Akureyri sendir annað lið, Akureyri 2 í bikarkeppnina og dróst það lið gegn FH 2 og átti sá leikur að fara fram í Hafnarfirði en hefur sömuleiðis verið færður til Akureyrar og fer sá leikur hefur nú verið færður til laugardagsins 11. október og hefst klukkan 18:00 í KA-Heimilinu.
Það er því kærkomið að sjá Akureyrarlið leika bikarleik á heimavelli en það hefur ekki gerst síðan í desember 2006. Í fyrra lék liðið fjóra bikarleiki, alla á útivelli en féll út í 4-liða úrslitum.
Við fjöllum nánar um liðin síðar.
|