 Þú getur pantað treyjuna hér á heimasíðunni
| | 2. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarViltu eignast keppnistreyju Akureyrar? Undanfarna daga höfum við fengið margar fyrirspurnir frá stuðningsmönnum Akureyrarliðsins um það hvort ekki sé hægt að kaupa keppnistreyjur Akureyrarliðsins sem þykja sérstaklega glæsilegar. Það væri vissulega ótrúlega magnað að sjá stóran hóp áhorfenda mæta á leiki í búningunum og taka þannig enn frekar þátt í leiknum.
Við höfum því ákveðið að láta framleiða treyjur, nákvæmlega eins og þær sem keppnisliðið klæðist með öllum sömu auglýsingum og bjóða stuðningsmönnum til kaups.
Til að hafa hugmynd um raunverulega eftirspurn svo og hvaða stærðir eru vinsælastar bjóðum við öllum áhugasömum að skrá sig hér á síðunni fyrir treyjum, einungis þarf að tilgreina nafn, tölvupóstfang, stærð og fjölda treyja sem óskað er eftir. Þegar treyjurnar eru tilbúnar verður haft samband við viðkomandi og gengið frá greiðslufyrirkomulagi og afhendingu. Gert er ráð fyrir að treyjan verði seld á 6.000.- krónur en meðlimir í stuðningsmannaklúbbi liðsins fá þær á 5.000.- krónur, svo sannarlega er hér komin jólagjöfin í ár!
Smelltu hér til að fá pöntunareyðublaðið. |