Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Fleiri hendur vinna létt verk

22. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stærri stjórn og endurröðun hlutverka

Nýir menn hafa verið að koma til starfa með stjórn Akureyrar Handboltafélags þannig að hópurinn hefur stækkað. Í kjölfarið hefur verið ákveðið að endurraða lítillega hlutverkum í hópnum. Þannig tekur Gestur Arason við formannshlutverkinu en Atli Ragnarsson tekur þess í stað við gjaldkerastörfum. Gestur Einarsson er áfram varaformaður og Alex Björn Bülow verður yfir stuðningsmannaklúbbi félagsins.

Ingólfur Samúelsson og Stefán Jóhannsson verða áfram meðstjórnendur og í þann hóp bætist Ágúst Lárusson.

Með stjórninni starfa áfram Hannes Karlsson og Örn Arnar Óskarsson að fjáröflun.

Við bjóðum þá Gest Arason og Ágúst Lárusson velkomna í hópinn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson