 Útför Haraldar verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. okt. kl. 13:30
| | 23. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarHeiðruð minning handboltafrumkvöðuls á AkureyriHaraldur M. Sigurðsson fyrrverandi formaður K.A. lést þriðjudaginn 14. október, 85 ára að aldri.
Haraldur var menntaður íþróttakennari, lauk prófi árið 1944 og fluttist sama ár til Akureyrar. Á þessum árum átti handboltinn á brattann að sækja en árið 1947 má segja að byrjað hafi að rætast úr því ófremdarástandi. Var það ekki síst Haraldi að þakka en hann tók þá að sér handknattleiksþjálfun bæði karla og kvenna hjá KA, auk þess að leika sjálfur. Segja má að Haraldur hafi verið einn helsti frumkvöðull nútíma handbolta hér á Akureyri.
Þó að heilsan hafi verið farin að bila síðustu árin var handboltaáhuginn ætíð til staðar og kom hann meðal annars á nokkra leiki Akureyrar Handboltafélags síðasta vetur.
Haraldur starfaði sem kennari við Gagnfræðaskóla Akureyrar í 40 ár. Hann var formaður KA árin 1952-55 og aftur 1974-75. Haraldur var gerður að heiðursfélaga K.A. árið 1985.
Akureyri Handboltafélag sendir fjölskyldu Haraldar hugheilar samúðarkveðjur við fráfall hans og til að heiðra minningu Haraldar verður mínútu þögn fyrir leik Akureyrar og Vals í kvöld. |