Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Allir í Höllina í kvöld

23. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - Valur í beinni textalýsingu

Það eru vonandi allir klárir í átök kvöldsins þegar við fáum topplið Vals í heimsókn í Íþróttahöllina og verður það örugglega hörkuleikur þar sem liðin munu örugglega berjast til þrautar.

Leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu er skyldumæting mjög tímanlega á leikinn því að hálftíma fyrir leik eða um klukkan 19:00 mun eyfirska stórsveitin Helgi og hljóðfæraleikararnir leika af fingrum fram eins og þeim er einum lagið!

Eins og venjulega verður boðið upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni fyrir þá sem ekki komast á leikinn og hefst hún rétt fyrir leik.

Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.

Smellið hér til að opna Beina Lýsingu

Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist af sjálfu sér á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson