Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjarni og félagar eiga erfiða leiki fyrir höndum

23. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Mikilvægir leikir hjá 2. flokki um helgina

2. flokkur karla heldur suður yfir heiðar á morgun föstudag og leikur tvo leiki í Íslandsmótinu. Á föstudagskvöldið klukkan 20:20 heimsækja þeir Hauka að Ásvöllum og klukkan 14:00 á laugardag fara strákarnir í Vodafonehöllina og leika þar við Val.

Búast má við hörkuleikjum þar sem hér er um að ræða lið sem reiknað er með að verði í efri hluta deildarinnar í vetur. Haukar hafa leikið þrjá leiki það sem af er, unnu Selfyssinga 28-25, gerðu jafntefli við HK 28-28 en töpuðu fyrir FH 34-23.

Valur hefur leikið tvo leiki, unnu HK 27-30 og gerðu jafntefli við Víking 26-26.

Akureyri hefur einungis leikið einn leik þegar þeir unnu Aftureldingu stórt 40-20 um síðustu helgi. Það er ljóst að þessir leikir eru gríðarlega mikilvægir fyrir strákana og nauðsynlegt að koma einbeittir til leiks enda viðbúið að mótherjarnir verða sterkari en þeir sem komu hingað um síðustu helgi.

Við hvetjum Akureyringa búsetta syðra eða þá sem verða staddir á Reykjavíkursvæðinu til að koma og hvetja strákana.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson