Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur setti tvö mörk gegn Pólverjunum

1. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

U19 - landsliðið vann Pólverja

U19-landslið Íslands sigraði Pólverja í gær með 40 mörkum gegn 35 á Pierre Tiby Tournament. Staðan í hálfleik var þó 20 – 18 fyrir Pólverja. Íslenska liðið lék afar vel sóknarlega og hefði sigurinn hæglega getað orðið enn stærri. Vörn og markvarsla var ekki með besta móti en flestir leikmenn léku vel sóknarlega.

Þessi úrslit duga þó ekki til að komast í undanúrslit og því þurfa Íslendingar að spila aftur við Pólverja á sunnudaginn um 5. sætið í mótinu.

Okkar maður Oddur Gretarsson skoraði 2 mörk í leiknum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson