Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það var þó búið að finna upp litmyndirnar á þessum tímum

1. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Gullmoli úr fornminjasafninu

Í dag dustum við rykið af öðrum gullmola sem er líkt og moli gærdagsins eitt af Mark-spjöldunum sem HSÍ gaf út á síðustu öld. Hér er á ferðinni leikskólastjórinn öflugi Þorvaldur Þorvaldsson og er spjaldið gefið út 1994 en þá hefur Valdi verið 22 ára gamall, 191 cm á hæð og 85 kíló. Helsta áhugamál Þorvaldar eru heimilisstörf enda pilturinn magnaður á þeim vettvangi.


Valdi alltaf baráttuglaður í vörninni og ekki elst um andartak á síðustu 14 árum

Þeir sem luma á skemmtilegu myndefni sem tengist Akureyri Handboltafélagi á einhvern hátt ættu endilega að hafa samband og við reynum að koma því á framfæri.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson