 Að sjálfsögðu förum við í alla leiki með því hugarfari að vinna
| | 12. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarMorgunblaðið í gær: - Ekki verið nein heppni hjá okkurÍ dag birtum við síðasta hlutann úr umfjöllun Ívars Benediktssonar úr Morgunblaðinu í gær. Hér ræðir hann við Rúnar Sigtryggsson um velgengni liðsins o.fl.Ekki verið nein heppni hjá okkur Að sjálfsögðu förum við í alla leiki með því hugarfari að vinna. En vissulega verður ekki á móti því mælt að heilt yfir hefur það komið mér aðeins á óvart hversu vel okkur hefur gengið, segir Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, spurður um hvort velgengni liðsins hafi komið honum á óvart.
Það sem hefur komið mér mest á óvart er hversu þéttir við erum sem lið og hvað við höfum náð að halda haus lengi, ekki farið út í neina vitleysu. Það hefur ekki verið neinn heppnisstimpill á sigrum okkar í deildinni. Liðið er mjög skipulagt og leikmenn eru þolinmóðir. Við lesum leikina betur en áður og yfirhöfuð hefur ekki verið neinn asi í sóknarleiknum hjá okkur. Við megum ekki gleyma okkur og missa einbeitinguna því það er ennþá mikið eftir af mótinu, segir Rúnar.
Seldu 150 ársmiða Til marks um áhugann og stemninguna í kringum Akureyrarliðið í vetur og þá breytingu sem átt hefur sér stað til batnaðar má nefna að félagið seldi í haust 150 ársmiða á heimaleiki liðsins í N1-deildinni. Það er ótrúlegt stökk frá vetrinum á undan þegar tíu ársmiðar seldust. iben@mbl.is |