 Við heimsækjum FH öðru sinni í dag
| | 13. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Útileikur gegn FH í KaplakrikaAkureyrarliðið fer aðra ferð í Hafnarfjörðinn í dag og mætir FH öðru sinni í Kaplakrikanum klukkan 19:30. Að þessu sinni er um að ræða útileik í N1 deildinni og ljóst að það lið sem fer með sigur af hólmi verður eitt á toppnum í deildinni að honum loknum. Akureyrarliðið er staðráðið í að gleyma seinni hálfleik bikarleiksins á sunnudaginn og gefa allt í þennan leik enda förum við í alla leiki til að sigra.
Það er ljóst að leita verður allra leiða til að stöðva skytturnar þrjár í FH liðinu, þá Aron, Ólaf og Ásbjörn sem fengu að leika alltof lausum hala í síðasta leik og því fór sem fór. Aron skoraði þá 12 mörk, Ólafur 7 og Ásbjörn 6..  Handbolti.is birti á laugardaginn lista yfir tólf markhæstu menn N1 deildarinnar og þar er einmitt áðurnefndur Aron Pálmason efstur á blaði en bæði Akureyri og FH eiga tvo menn á þessum lista, en röðin er sem hér segir:
| Leikmaður | Félag | Mörk | | Aron Pálmason | FH | 59 | | Valdimar Þórsson | HK | 53 | | Rúnar Kárason | Fram | 52 | | Sigurbergur Sveinsson | Haukar | 46 | | Sverrir Hermannson | Víkingur | 41 | | Fannar Friðgeirsson | Stjarnan | 37 | | Andri Snær Stefánsson | Akureyri | 37 | | Ólafur Guðmundsson | FH | 37 | | Árni Sigtryggson | Akureyri | 36 | | Arnór Gunnarsson | Valur | 33 | | Baldvin Þorsteinsson | Valur | 33 | | Andri Berg Haraldsson | Fram | 33 |
Ef við lítum á markaskorun Akureyrarliðsins í N1-deildinni hafa mörkin dreifst sem hér segir:
| Leikmaður | Mörk | | Andri Snær Stefánsson | 37 | | Árni Sigtryggson | 36 | | Jónatan Magnússon | 34 | | Oddur Gretarsson | 27 | | Hörður Fannar Sigþórsson | 16 | | Heiðar Þór Aðalsteinsson | 11 | | Þorvaldur Þorvaldsson | 9 | | Rúnar Sigtryggsson | 6 | | Anton Rúnarsson | 5 | | Hreinn Hauksson | 3 | | Gústaf Línberg | 2 | | Elfar Halldórsson | 2 | | Atli Ævar Ingólfsson | 1 |
 En aftur að leik dagsins. Það er farið að vekja mikla athygli hve öflugir stuðningsmenn Akureyrarliðsins hafa verið á síðustu útileikjum og nú heitum við á alla sem vettlingi geta valdið til að leggjast á eitt með liðinu til að knýja fram sigur á FH það er allavega á hreinu að leikmenn Akureyrar ætla ekki að fara suður í dag til þess að tapa þriðja leiknum gegn FH á þessu tímabili.
Nú verða menn að halda einbeitingu allan leikinn því að með leikgleðinni og stemmingunni sem einkennir liðið eru því allir vegir færir og þegar bestu áhorfendur landsins mæta einnig til leiks eru allar horfur á að ævintýrin haldi áfram að gerast. Góður hópur áhorfenda var á bandi Akureyrar og lét vel í sér heyra á sunnudaginn. mynd: Steinn Vignir sport.is
|