Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heiðar, Oddur og Anton í góðum félagsskap í U-21 árs landsliðinu





26. nóvember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Þrír leikmenn Akureyrar í landsliðshópum Íslands

Þrír leikmenn Akureyrar Handboltafélags hafa verið valdir til æfinga með U21-árs landsliðinu en framundan er æfingahelgi hjá hópnum. Þetta eru þeir Heiðar Þór Aðalsteinsson, Oddur Gretarsson og Anton Rúnarsson. Við óskum strákunum að sjálfsögðu til hamingju með þennan árangur en þeir hafa verið fastamenn í hópnum upp á síðkastið. Þjálfari liðsins er Heimir Ríkharðsson.

Þeir hitta þarna tvo fyrrum leikmenn Akureyrar en þeir Ásbjörn Friðriksson, sem nú leikur með FH og Sveinbjörn Pétursson sem stendur núna í markinu hjá HK eru einnig í þessum hópi.

Þess má einnig geta að Oddur er einnig í U-18 ára hópnum þannig að það er í nógu að snúast hjá honum þessa dagana.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson