 Hafþór og Oddur eru í úrvalsliði N1 deildarinnar


| | 3. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarÚrvalslið 1.-7. umferðar: Hafþór, Oddur og umgjörðinNú í hádeginu kynnti HSÍ val á bestu leikmönnum í fyrstu sjö umferðum N1 deildarinnar og stillti þar með upp úrvalsliði þessara umferða. Akureyri Handboltafélag setti sinn svip á athöfnina því að tveir leikmenn liðsins voru útnefndir bestir í sínum stöðum. Hafþór Einarsson er besti markvörðurinn og Oddur Gretarsson besti vinstri hornamaðurinn og eru þeir vel að þessum viðurkenningum komnir. Akureyri Handboltafélag fékk síðan viðurkenningu fyrir að vera með bestu umgjörð á heimaleikjum sínum fyrir fyrstu sjö umferðirnar.
Þeir Hafþór og Oddur flugu suður í morgun til að veita viðurkenningum sínum viðtöku og einnig sem fulltrúar Akureyrar Handboltafélags. Það er engum blöðum um það að fletta að þeir félagar eru vel að þessum viðurkenningum komnir. Smelltu á myndina til að fá samantekt og myndir af Hafþóri Endurkoma Hafþórs eftir tveggja ára hvíld hefur verið hreint ótrúleg og hefur hann svo sannarlega blásið á allar hrakspár og er með 20 varða bolta að meðaltali í fyrstu sjö leikjum deildarinnar. Í blaðagrein eftir Opna Reykjavíkurmótið í haust var fjallað um dökkt útlit hjá liði Akureyrar og sérstaklega dregið fram sem dæmi um svartnættið að “markvörður liðsins, Hafþór Einarsson, hætti fyrir tveimur árum...“. Ekki slæm endurkoma það! Smelltu á myndina til að fá samantekt og myndir af Oddi Þá hefur Oddur Gretarsson svo sannarlega blómstrað í vetur og átt hvern stórleikinn á fætur öðrum og þrátt fyrir að vera að upplagi vinstri hornamaður þá hefur hann ekki síður leyst hægra hornið af sérstakri snilld. Þar að auki er Oddur fastamaður í U18 og U21 árs landsliðum Íslands.
Úrvalslið N1-deildar karla er þannig skipað: Markvörður: Hafþór Einarsson, Akureyri Línumaður: Kári Kristján Kristjánsson, Haukum Vinstra horn: Oddur Gretarsson, Akureyri Vinstri skytta: Valdimar Fannar Þórsson, HK Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val Hægri skytta: Rúnar Kárason, Fram Miðjumaður: Aron Pálmarsson, FH
 Mynd: visir.is
Þar að auki var Aron Pálmason, FH valinn besti leikmaðurinn, Elvar Örn Erlingsson, þjálfari FH, var valinn þjálfari umferðanna og bestu dómararnir eru þeir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson.
Eins og áður segir fékk Akureyri Handboltafélag verðlaun fyrir bestu umgjörðina á leikjum sínum og viljum við sérstaklega óska frábærum stuðningsmönnum, áhorfendum, leikmönnum og öllum þeim sem hafa tekið þátt í að skapa þá frábæru stemmingu sem hér hefur verið til hamingju með viðurkenninguna og heitum því að við gerum enn betur á nýju ári.
Hér eru svo nokkrar myndir til að rifja upp stemminguna það sem af er í haust. Liðin kynnt til leiks
 Troðfull höllin á Haukaleiknum
 Frábær stemming á leiknum gegn Val
 Háskólabandið hitaði upp fyrir FH leikinn
 Herbert Guðmundsson fyrir HK leikinn
 Helgi og hljóðfæraleikararnir hituðu upp fyrir Valsleikinn
 Karlakór Akureyrar - Geysir söng fyrir Haukaleikinn
|