 Geir Guðmundsson verður í hópnum í dag en Valdi verður fjarri góðu gamni

| | 4. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Stjarnan - Akureyri í beinni textalýsinguÍ dag verður heil umferð í N1 deild karla og fá leikmenn Akureyrar það hlutverk að heimsækja Stjörnuna í Garðabæ. Það verður ekki auðveldur leikur enda eiga Stjörnumenn harma að hefna frá síðasta leik liðanna hér í Höllinni en það var einmitt upphafið að sigurgöngu Akureyrarliðsins.
Stuðningsmenn Akureyrarliðsins á suðvesturhorninu hafa staðið rækilega við bakið á liðinu í síðustu útileikjum og nú heitum við á alla að mæta í Mýrina í kvöld og halda uppi stemmingu og gleði með strákunum.
Að sjálfsögðu verður heimasíðan á staðnum og verður leiknum lýst hér á síðunni fyrir okkar frábæru stuðningsmenn sem ekki eiga kost á því að mæta á leikinn. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og hefst lýsingin rétt fyrir leik.
Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.
Smellið hér til að opna Beina Lýsingu
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með.
Við litum inn á æfingu hjá Akureyrarliðinu í gær, og hittum þar fyrir okkar menn í úrvalsliði N1 deildarinnar þá Hafþór Einarsson og Odd Gretarsson sem rétt fengust til að stilla sér upp fyrir myndatöku í tilefni dagsins enda undirbúningur fyrir Stjörnuleikinn í fullum gangi. Hafþór, besti markvörðurinn og Oddur besti vinstri hornamaðurinn á æfingu eftir útnefninguna í gær Það kom fram að Þorvaldur Þorvaldsson mun missa af leiknum, Valdi á ennþá við eymsli að stríða í læri en vonast eftir því að verða klár í næsta leik sem er eftir viku á móti HK.
Þá vitum við að Árni Sigtryggsson verður ekki með en í hópnum verður að öllum líkindum kornungur strákur, Geir Guðmundsson en hann er mikið efni og verður athyglisvert að fylgjast með honum í framtíðinni.
Það verður sem sé líf og fjör í handboltanum í dag og Akureyrarliðið þarf á öllum sínum krafti og stuðningi að halda. |