 Oddur á léttu nótunum

| | 8. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur Gretarsson sýnir hina hliðinaVefsíðan sportid.is hefur verið að birta viðtöl við ýmsa leikmenn N1-deildarinnar að undanförnu undir yfirskriftinni: Hin hliðin – leikmannakynning. Hér sjáum við hvað Oddur Gretarsson segir um sjálfan sig.
Nafn: Oddur Gretarsson Fæðingardag: 20. júlí 1990 Atvinna/nám: MA Hæð: 182.5 Uppeldisfélag: Þór Skapgerð: Rólegur Staða á velli: Vinstra hornið, en spila sem hægri hornamaður akkúrat þessa stundina, krefjandi staða. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingum: Að tapa fyrir gömlum í fótbolta sem er sjaldan, og verð að segja að teygjurnar eru ekki mínar sterkustu hliðar Skemmtilegast: Hraðahlaupin og spilið Skemmtilegasta eða vandræðalegasta.: skemmtilegasta - keppa , vandræðalegasta – hlaupa aftur til bara eftir að hafa klúðrað hraðahlaupi eða víti Erfiðasti andstæðingur: Margir. Baldvin Þorsteins, Addi Mall og Björgvin Páll þar ofarlega. Guðmundur Árni í Selfoss er sá erfiðasti þó. Ekki erfiðasti andstæðingur: Baldvin Þorsteins hérna í höllinni um daginn. Uppáhaldslið í Enska: Middlesbrough og Man.Utd. Uppáhaldsleikmaður í Handboltanum: Ólafur Stef. Alexander Petterson og Guðjón valur. Uppáhaldsleikmaður á Íslandi: Sveinbjörn Pétursson er í uppáhaldi Hverjum vildir þú helst líkjast handboltalega séð: Guðjón Valur Sigurðsson Hvaða liði myndir þú aldrei vilja spila með: Það var alltaf KA. Sætasti sigur: Sigur á þjóðverjum í undanúrslitum Hela-Cup og sigurinn á FH í síðustu umferð var sætur eftir tvö töp. Ertu hjátrúarfullur: ég get verið það já.. en oftast er það tímabundið. Hver er helsti styrkleikinn: Hætti ekki að reyna Ef þú mættir breyta einni reglu í handbolta hverju myndir þú breyta? Myndi ekki breyta neinu.
Spurningar um samherja... Grófastur: Jonni Magg Nördið: Sjást ekki fyrir norðan Höslerinn: Andri snær bókað Varnarjaxlinn: Rúnar og Valdi Uppáhalds- Sjónvarpsefni: þættir eins og CSI, one tree hill og dagvaktin t.d. Tónlist: Kings of Leon þessa stundina Vefsíða: Handbolti.is, akureyri-hans.is og svo er facebook að koma mjög sterkt inn í dag Drykkur: íslenska Vatnið Matur: Maturinn hennar mömmu Besta bíómyndin Blood Diamond
Gætir þú lifað án tölvu: Ekkert mál Hvaða hlut ertu alltaf með á þér: Símann Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir: Vinna handboltaleiki Hvert er mesta afrek í lífinu: Náði 7 í enskuprófi um daginn.
Áhugamál: Aðalega handbolti, fótbolti og aðrar íþróttir... hafa gaman og lifa lífinu
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin... NFL: Huginn Ragnarsson Karfa: Fín íþrótt Villa: Sveinn Leó Bogason Þjálfari: Rúnar Ugla: Menntaskólinn á Akureyri Ljósastaur: Croucharnir Vestmannaeyjar: Shellmót
Hvort er betra… Vatn eða mjólk: Vatn Þögn eða hávaði: Þögn, má vera hávaði á leikjum Sundlaugar eða heitapottar: Heitapottar Sumar eða vetur: Vetur Æfing eða leikur: Leikur Hlaupa eða hjóla: Hjóla
Sjá meira um Odd |