 Í dag kynnumst við Andra Snæ

| | 9. desember 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarAndri Snær Stefánsson sýnir hina hliðinaVefsíðan sportid.is hefur verið að birta viðtöl við ýmsa leikmenn N1-deildarinnar að undanförnu undir yfirskriftinni: Hin hliðin – leikmannakynning. Í dag er komið að Andra Snæ.
Nafn: Andri Snær Stefánsson Fæðingardag: 18. apríl 1986 Atvinna/nám: Kennaranemi í Háskólanum á Akureyri Hæð: 172 cm Uppeldisfélag: KA Skapgerð: Rólegur Staða á velli: Allt muligt man, upplagi hornamaður en einnig minnsta skytta í Evrópu. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingum: Klárlega þegar körfubolti er í upphitun, ekki mín sterkasta hlið. Skemmtilegast: Spila og línubolti. Skemmtilegasta eða vandræðalegasta.: Það var frekar vandræðalegt þegar ég var að spila í 4. flokki á móti HK. Við vorum búnir að vera FÁRÁNLEGA lengi í vörn og höndin búin að vera lengi uppi, loksins þegar við unnum boltann þá dúndraði ég honum yfir völlinn af því að ég hélt að tíminn var að renna út.. Þá voru 5 mínútur eftir. Erfiðasti andstæðingur: Uwe Gentsheimer Ekki erfiðasti andstæðingur: Spilaði einu sinni á móti Sveppa í bikarleik, hann var ekki alveg með þetta á hreinu. Uppáhaldslið í Enska: Arsenal Uppáhaldsleikmaður í Handboltanum: Klárlega Guðjón Valur Uppáhaldsleikmaður á Íslandi: Guðjón Valur Hverjum vildir þú helst líkjast handboltalega séð: Ég er alveg sáttur með minn stíl Hvaða liði myndir þú aldrei vilja spila með: Aldrei að segja aldrei, en einu sinni var það Þór Sætasti sigur: Margir góðir en það var ekki leiðinlegt að verða bikarmeistari með KA 2004. Ertu hjátrúarfullur: Já frekar, samt ekkert að missa mig eins og sumir. Hver er helsti styrkleikinn: Hraði og fintur. Ef þú mættir breyta einni reglu í handbolta hverju myndir þú breyta? Fínt eins og er.
Spurningar um samherja... Grófastur: Hörður Fannar Sigþórsson á þetta skuldlaust. Nördið: Hafþór Einarsson Höslerinn: Oddur Grétarsson fer allavega alltaf í skemmtistaðasleik þegar við kíkjum út þannig að ég vel hann. Varnarjaxlinn: Rúnar og Valdi (afi)
Uppáhalds- Sjónvarpsefni: Dagvaktin og Neighbours Tónlist: Gamalt íslenskt og gott er málið, en annars hlusta ég á ýmsa tónlist eftir skapi hverju sinni. Vefsíða: akureyrihandbolti.is og visir.is Drykkur: Vatn Matur: Allt sem mamma gerir Besta bíómyndin: Rocky 4 Gætir þú lifað án tölvu Kein problem Hvaða hlut ertu alltaf með á þér Símann Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir: Vinna handboltaleik og vera í góðra manna hópi. Hvert er mesta afrek í lífinu: Vera á Julian í 5 ár og hafa náð mér í góða kærustu.. Krúttlegur
Áhugamál: Mjög margt, mikill íþróttaáhugamaður
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin... NFL: Tröllvaxnir menn Karfa: David Robinson Villa: Baldur Már Stefánsson Þjálfari: Þorvaldur Örlygsson Ugla: MA Ljósastaur: Maggi Stef Vestmannaeyjar: Maggi Stef Hvort er betra… Vatn eða mjólk: Vatn Þögn eða hávaði: Misjafnt t.d. fínt að hafa hávaða þegar maður er að keppa Sundlaugar eða heitapottar: Heitapottar Sumar eða vetur: Bæði betra Æfing eða leikur: Leikur Hlaupa eða hjóla: Hjóla
Sjá meira um Andra Snæ |