Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Arna Erlingsdóttir var atkvæðamikil í leiknum

21. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Sigurstemming í kvennaboltanum

Stelpurnar í KA/Þór sýndu það í gærkvöldi að handboltaævintýrið á Akureyri heldur áfram. Stelpurnar sem leika í 2. deild sigruðu í gær lið Gróttu sem leikur í N1-deildinni og eru þar með komnar í undanúrslit bikarkeppninnar. Leiknum lauk með eins marks sigri 22-21 en stelpurnar höfðu góða forystu mestallan leikinn.


Sigurstemming eftir leikinn í gær

Stelpurnar eiga hrós skilið fyrir frammistöðuna og sendum við þeim hamingjuóskir en þess má einnig geta að þær eru með fullt hús stiga í 2. deildinni það sem af er. Stelpurnar sendu Akureyrarstrákunum með þessu skýr skilaboð um að nú þurfa þeir að halda uppi merkinu og innbyrða tvö stig í Víkingsleiknum á morgun.

Sjá myndir o.fl. frá kvennaleiknum í gær.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson