 Hreinn Hauksson er klár í slaginn í dag
| | 22. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Akureyri - Víkingur í beinni textalýsinguÞá er komið að leikdegi hjá Akureyri Handboltafélagi. Það verður mikið um dýrðir í Íþróttahöllinni í kvöld í fyrsta leik ársins þegar Akureyri tekur á móti Víkingum. Stórsveit Tónlistarskóla Akureyrar, eða Big Bandið undir stjórn Alberto Carmona ætlar að spila, ekki bara fyrir leik heldur líka í hálfleik þannig að það verður sannkallað stuð og sveifla. Það sem mestu máli skiptir þó er hörkuleikur þar sem bæði munu leggja allt í sölurnar.
Leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:30 og að sjálfsögðu ætlum við að bjóða stuðningsmönnum sem ekki eiga heimangegnt á leikinn upp á beina lýsingu frá leiknum hér á síðunni og hefst hún rétt fyrir leik.
Það er virkilega auðvelt að fylgjast með leiknum í gegnum Beinu Lýsinguna.
Smellið hér til að opna Beina Lýsingu
Beina Lýsingin opnast í nýjum glugga sem uppfærist sjálfvirkt á 15 sekúndna fresti. Það er því ekkert mál að fylgjast með. Leikurinn hefst eins og fyrr kom fram klukkan 19:30 og við hvetjum alla til að fylgjast vel með. |