Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Jónatan var yfirburđamađur í dag







23. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Arfaslakur lokakafli fyrri hálfleiks kostađi tap

Ţađ var ekki laust viđ ađ gćtti tilhlökkunar fyrir leik Akureyrar og Víkings í kvöld, biđin eftir heimaleik orđin ótrúlega löng auk ţess sem liđiđ hafđi endurheimt Árna Sigtryggsson í hópinn. Upphafsmínúturnar gáfu líka tilefni til bjartsýni, mögnuđ barátta í vörninni og stađan orđin 2-0 fyrir heimamenn sem voru vel studdir af fullu húsi áhorfenda. Víkingar náđu reyndar ađ jafna í 2-2 en ţá var bara gefiđ í aftur og stađan breyttist í 4-2 og seinna í 5-3 og rúmar ellefu mínútur liđnar. Víkingar jafna en Akureyri nćr forystunni aftur 6-5 og átján mínútur liđnar.

Ţađ sem eftir lifđi fyrri hálfleiks varđ síđan hreinasta martröđ, Víkingar tóku leikinn gjörsamlega í sínar hendur og hreinlega niđurlćgđu heimamenn, skoruđu 9 mörk gegn einu heimamanna og leiddu í hálfleik 7-14. Á ţessum tíma gekk ekkert í sókninni, vörnin virkađi ráđvillt og engin markvarsla. Ţađ segir nokkuđ um sóknarleikinn ađ af ţessum 7 mörkum komu 4 úr vítaköstum.

Ţađ var ţví ţungt hljóđ í stuđningsmönnum í hálfleik og eina gleđiefniđ var frábćr frammistađa Stórsveitar Tónlistarskóla Akureyrar sem fór á kostum á kaffiteríunni.

Ţađ var allt annađ ađ sjá til liđsins í seinni hálfleik og náđist ađ minnka muninn lítillega, Hörđur Flóki náđi nokkrum góđum vörslum og í stöđunni 12-18 kom magnađur kafli. Á ţriggja mínútna kafla skorađi Akureyrarliđiđ fimm mörk í röđ og stađan orđin 17-18 og komin flott stemming í Höllina. Tćkifćri fékkst til ađ jafna leikinn en ţađ tókst ekki og í kjölfariđ tókst Víkingum ađ síga fram úr aftur og náđu fjögurra marka forystu, 19-23 ţegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Ţann mun tókst ekki ađ brúa og ţrátt fyrir ađ Jónatan skorađi úr vítakasti ţegar leiktíminn var útrunninn fóru Víkingar međ tveggja marka sigur 25-27.

Jónatan Magnússon var yfirburđamađur í liđi Akureyrar og í raun sá eini sem lék af eđlilegri getu í dag. Hann skorađi samtals 15 mörk, 11 ţeirra úr vítaköstum en flest ţeirra komu reyndar eftir stođsendingar frá honum. Ađrir sem skoruđu voru Hörđur Fannar 5 mörk, Oddur 4 mörk og Rúnar Sigtryggsson 1. Sem sagt einungis fjórir leikmenn sem skora og athyglisvert ađ fyrir utan fjögur af mörkum Jónatans koma öll hin úr vítum, hrađaupphlaupum og af línunni. Ţađ kom sem sé lítiđ út úr skyttunum í dag, Andri Snćr var vinstra megin og náđi sér ekki nćgilega á strik og ţá er einnig ljóst ađ Árni Sigtryggsson er ennţá bara skugginn af sjálfum sér og á töluvert í land međ ađ ná fyrri styrk.

Goran Gusic kom inn í hópinn í dag en hann er farinn ađ ćfa aftur eftir ađ hafa glímt viđ ţrálát meiđsli í allan vetur, hann á ţó greinilega eftir ađ komast í betra leikform.

Markvarsla Hafţórs og Harđar Flóka var lítil í leiknum, Flóki tók reyndar góđa rispu í fyrri hluta seinni hálfleiks en samtals vörđu ţeir félagar ađeins 8 skot í leiknum.

Međ ţví ađ skođa beinu lýsingu okkar af leiknum er hćgt ađ sjá hvernig leikurinn gekk fyrir sig.

Ţetta var sem sé döpur byrjun á árinu en úrslit annarra leikja gera ţađ ţó ađ verkum ađ enn munar einungis 4 sigum á toppliđum og Akureyri sem situr nú í 6. sćti deildarinnar.

Stađan í deildinni er nú sem hér segir:
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Fram12723342 : 3311116:8
2. Haukar12804344 : 3103416:8
3. Valur12633330 : 2884215:9
4. FH12624361 : 357414:10
5. HK12534320 : 327-713:11
6. Akureyri12606313 : 326-1312:12
7. Stjarnan12237302 : 323-217:17
8. Víkingur121110309 : 359-503:21


Viđ birtum hér tvćr myndir Ţóris Tryggvasonar ţar sem Víkingar sćkja ađ marki Akureyrar.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson