Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Geir og strákarnir fá verðuga andstæðinga í bikarnum

28. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Akureyri mætir Selfyssingum í bikarkeppninni

Nú er búið að draga í 4-liða úrslitum bikarkeppni 2. flokks og fékk Akureyri heimaleik gegn Selfoss. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast HK og ÍR.

Ekki er búið að ganga frá leikdegi en þessum leikjum þarf að vera lokið fyrir 22. febrúar en liðin hafa frest til 2. febrúar að semja um leikdag.

Akureyri og Selfoss mættust á Selfossi í deildinni fyrr í vetur og þar fór Akureyri með eins marks sigur 33-34 í miklum baráttuleik þannig að það má búast við hörkuleik á milli þessara liða þegar þar að kemur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson