 Andri Snær var markahæstur í dag


| | 30. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarSlæm útreið gegn Val í gærkvöldiAkureyri fór enga frægðarför til Valsmanna í gærkvöldi. Fyrstu ellefu mínúturnar var leikurinn jafn og skemmtilegur, jafnt á öllum tölum og Akureyri í fínum málum. Í kjölfarið ná Valsmenn fjögurra marka forystu 9-5 og þar með virtist Akureyrarliðið missa hausinn. Valsmenn réðu lögum og lofum á vellinum og fóru með níu marka forskot 17-9 til leikhlés og svo virtist sem úrslitin væru ráðin. Jónatan skorar Valsmenn héldu áfram í upphafi seinni hálfleiks og munurinn jókst hröðum skrefum allt upp í 30-15 en á þessum tíma endaði hver sóknin á fætur annarri á lélegum skotum sem Ólafur Gíslason markvörður Vals varði auðveldlega og skilaði boltanum trekk í trekk fram í hraðaupphlaup sem gáfu mörk. Það sem eftir lifði leiksins náði Akureyri að krafla lítillega í bakkann og lokatölur urðu 32-21 fyrir Val eftir að Hafþór markvörður skoraði síðasta mark leiksins, þvert yfir allan völlinn.
Hörður Fannar þurfti að yfirgefa völlinn meiddur fljótlega í fyrri hálfleik og munaði mikið um fjarveru hans í vörninni og ekki síður í sókninni. Sigur Valsmanna var sanngjarn á meðan leikur Akureyrar var í heildina séð dapur. Vörnin sem hafði verið aðalsmerki liðsins var máttlaus og að sama skapi var engin grimmd í sóknarleiknum. Það var helst Andri Snær sem lét að sér kveða og hefði hann að ósekju mátt vera meira inná í seinni hálfleik. Aragrúi dauðafæra úr hraðaupphlaupum, línu og hornum fór í vaskinn þar sem Ólafur Gíslason fór á kostum í Valsmarkinu með alls 27 skot varin.
Hafþór byrjaði í markinu og tók nokkra bolta í byrjun en síðan lítið meir þannig að Hörður Flóki kom í markið og tók nokkra fína bolta í fyrri hálfleik. Flóki datt síðan niður í seinni hálfleik og átti Hafþór ágæta innkomu í seinni hálfleiknum.
Dómarar leiksins áttu mjög dapran dag og var mikið ósamræmi í dómum þeirra þar sem Valsmenn fengu vítaköst á færibandi á meðan sleppt var ítrekað að dæma víti á Valsara. Mörk Akureyrar: Andri Snær 5, Árni 3, Jonni 3, Oddur 3, Goran 2 Hreinn 2, Hafþór 1, Atli 1, Gústaf 1.
Sjá gang leiksins
Nú verður Akureyri að gyrða sig í brók fyrir næsta leik sem er heimaleikur gegn Fram og verður sá leikur fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 19:30.
Að loknum leikjum gærdagsins er staðan í deildinni sem hér segir:
| Nr. | Félag | Leikir | U | J | T | Mörk | Hlutfall | Stig | | - | | 1. | Haukar | 13 | 9 | 0 | 4 | 374 : 330 | 44 | 18 | : | 8 | | 2. | Valur | 13 | 7 | 3 | 3 | 362 : 309 | 53 | 17 | : | 9 | | 3. | FH | 13 | 7 | 2 | 4 | 395 : 379 | 16 | 16 | : | 10 | | 4. | Fram | 13 | 7 | 2 | 4 | 362 : 361 | 1 | 16 | : | 10 | | 5. | HK | 13 | 5 | 3 | 5 | 344 : 354 | -10 | 13 | : | 13 | | 6. | Akureyri | 13 | 6 | 0 | 7 | 334 : 358 | -24 | 12 | : | 14 | | 7. | Stjarnan | 13 | 2 | 3 | 8 | 324 : 357 | -33 | 7 | : | 19 | | 8. | Víkingur | 13 | 2 | 1 | 10 | 336 : 383 | -47 | 5 | : | 21 |
Hér er hægt að skoða nokkrar myndir frá leiknum sem ljósmyndari Handbolti.is tók. |