 Oddur, Bjarni og Elmar fóru hamförum í seinni hálfleiknum í gær


| | 31. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Magnaður sigur á FH í skrautlegum leikStrákarnir í 2. flokki Akureyrar stigu sannkallaðan stríðsdans í lok leiks gegn hinu toppliðinu, FH í gærkvöldi og engin furða því lengst af benti ekkert til annars en að FH færi með öruggan sigur af hólmi.
FH liðið fór betur af stað í leiknum, reyndar var jafnt í stöðunni 3-3 og raunar lítið skorað framan af leik og staðan 6-7 fyrir FH eftir tuttugu mínútna leik. Í kjölfarið hófust dómarar leiksins handa við brottvísanir og framan af fuku sérstaklega leikmenn Akureyrar útaf í kippum. FH-ingar með Ásbjörn Friðriksson fremstan í flokki gengu á lagið, tveimur fleiri og náðu átta marka öruggri forystu 7-15 og höfðu sex marka forystu í hálfleik 10-16.
Eins og tölurnar bera með sér var fyrri hálfleikurinn frekar dapur og ráðleysislegur hjá liðinu, boltinn gekk ekki nógu vel í sókninni, FH-ingar reyndar að spila fína vörn og góð markvarsla hjá þeim. Hjá Akureyri byrjaði Elmar vel í markinu en dalaði þegar á hálfleikinn leið og kom Siguróli í markið en fann sig ekki nægilega vel heldur.
Það var því ljóst að eitthvað mikið þurfti að gerast í seinni hálfleik, hann byrjaði reyndar ekki gæfulega, FH endurheimti strax átta marka forystu, 10-18 og skömmu síðar 13-21 og einungis 20 mínútur eftir af leiknum.
Dómararnir misstu í raun alveg tökin á leiknum og ráku leikmenn og þjálfara út af við minnstu yfirsjónir þannig að oft var mjög fáliðað á vellinum. Liðsmenn Akureyrar virtust þó höndla ástandið betur, Bjarni Jónasson og Oddur Gretarsson drifu liðið áfram og á örfáum mínútum vann liðið upp muninn og staðan breyttist í 21-22 fyrir FH og skyndilega gjörtapaður leikur orðinn æsispennandi.
Akureyri náði loks að jafna í stöðunni 24-24 en FH náði aftur tveggja marka forystu 25-27. Ásbjörn var rekinn útaf í liði FH fyrir gróft brot á Oddi Gretarssyni, og hefði raunar verðskuldað rautt spjald fyrir það. Akureyrarliðið efldist enn frekar við þetta og jafnaði í 27-27 og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum 28-27 og áfram í 29-27. Strákarnir héldu haus síðustu mínúturnar og lönduðu dramatískum og ákaflega mikilvægum sigri 31-29 að lokum.
Liðið endurheimti stemminguna og sjálfstraustið, Elmar kom aftur í markið þegar 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik og datt strax í sinn besta ham og átti svo sannarlega sinn þátt í viðsnúningi liðsins. Til marks um stemminguna sem komin var í hópinn varð Elmari það á að fagna einni glæsimarkvörslu með því að klappa duglega á öxl hornamanns FH og sá annar dómarinn ástæðu til að víkja Elmari af leikvelli fyrir.
Með þessum sigri styrkti liðið stöðu sína á toppi deildarinnar en það hefur einungis tapað tveim stigum á meðan FH hefur nú tapað 4 stigum.
Mörk Akureyrar: Oddur 10 (4 úr vítum), Bjarni 8 (2 úr vítum), Jón Þór 3, Atli, Hákon og Heiðar Þór 2 mörk hver, Ágúst, Anton, Hlynur og Halldór 1 mark hver.
Elmar varði 17 skot, þar af 11 í seinni hálfleik og Siguróli varði 1 skot.
Staðan á Íslansmótinu er svohljóðandi eftir leikinn:
| Nr. | Félag | Leik | U | J | T | Mörk | Nett | Stig | | 1. | Akureyri | 13 | 12 | 0 | 1 | 435:332 | 103 | 24 | | 2. | FH | 12 | 10 | 0 | 2 | 423:310 | 115 | 20 | | 3. | Selfoss | 11 | 6 | 1 | 4 | 356:319 | 37 | 13 | | 4. | Víkingur | 12 | 5 | 2 | 5 | 339:317 | 22 | 12 | | 5. | Valur | 11 | 5 | 2 | 4 | 337:323 | 14 | 12 | | 6. | ÍR | 11 | 6 | 0 | 5 | 318:316 | 2 | 12 | | 7. | Haukar | 12 | 4 | 4 | 4 | 330:318 | 12 | 12 | | 8. | HK | 12 | 5 | 1 | 6 | 357:346 | 11 | 11 | | 9. | Afturelding | 12 | 5 | 1 | 6 | 329:359 | -30 | 11 | | 10. | Fram | 13 | 5 | 0 | 8 | 375:396 | -21 | 10 | | 11. | Stjarnan | 10 | 2 | 1 | 7 | 270:295 | -25 | 5 | | 12. | Fjölnir | 13 | 0 | 0 | 13 | 256:494 | -238 | 0 |
|