 Handboltinn tekur á móti liðsmönnum Viggós
| | 3. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarStórleikir í handboltanum og körfunni á fimmtudaginnÁ fimmtudaginn verður einn stærsti dagurinn í íþróttalífi Akureyringa. Þá hittist þannig á að það er heimaleikur bæði í handboltanum og í körfuboltanum. Það hefur orðið að samkomulagi á milli Akureyrar Handboltafélags og körfuknattleiksdeildar Þórs að gera úr þessu sameiginlega íþróttahátíð sem við köllum Tvíleikur í Höllinni og stendur frá klukkan 17:30 til 21:00.
Körfuknattleikurinn byrjar klukkan 17:30 en þar tekur Þór á móti Grindvíkingum sem eru í öðru sæti Íslandsmótsins. Þetta verður fyrsti heimaleikur hjá nýjum leikmanni Þórs, Daniel Bandy en liðið hefur glímt við mikil meiðsli lykilleikmanna og veitir ekki af öllum hugsanlegum stuðningi í erfiðri stöðu í Iceland Express deildinni.
Klukkan 19:30 hefst svo leikur Akureyrar Handboltafélags gegn Fram í N1-deildinni. Þetta er síðasti leikurinn í annarri umferð mótsins en staða liðanna að honum loknum ræður hvernig heimaleikir og útileikir raðast í þriðju umferð deildarinnar.
Á milli leikjanna verða tónleikar með hinum óviðjafnanlegu Hvanndalsbræðrum og má gera ráð fyrir að þeir spili frá ca. klukkan 18:45 til 19:20. Áhorfendur fá sem sagt tvo leiki á verði eins og frábæra tónleika í kaupbæti þar sem sami miði gildir á báða leikina. Ársmiðahafar og meðlimir stuðningsmannaklúbba fá að sjálfsögðu frítt á báða leikina. Sömuleiðis fá allir handboltaiðkendur hjá KA og Þór svo og iðkendur körfuboltans hjá Þór boðsmiða sem gildir á báða leikina. Boðsmiðunum verður dreift til krakkanna á æfingum í vikunni og jafnframt verða fríar rútuferðir frá Síðuskóla í Höllina. Þjálfarar krakkanna munu kynna fyrirkomulag ferðanna á æfingum.
Að öðru leiti verður allt með hefðbundnu sniði, stuðningsmannaklúbbur körfuboltans (6. maðurinn) verður með sitt hefðbundna kaffi í hálfleik körfuboltans og stuðningsmannaklúbbur Akureyrar Handboltafélags verður með mat fyrir sína meðlimi fyrir handboltaleikinn og kaffiveitingar í hálfleik.
Það er trú okkar að þetta verði hin besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Bæði lið eru staðráðin í að leggja allt í sölurnar til að komast á sigurbraut á ný.
Akureyri og Fram mættust á útivelli þann 6. nóvember og þar sýndi Akureyrarliðið allar sínar bestu hliðar og vann góðan sigur á heimamönnum.
Í Fram-liðinu leika tveir Akureyringar en það eru leikstjórnendurnir Halldór Jóhann Sigfússon sem lengst af lék með KA og Guðmundur Freyr Hermannsson sem lék með Akureyrarliðinu fyrsta tímabilið. Þriðji Akureyringurinn í Framliðinu, Magnús Stefánsson frá Fagraskógi varð fyrir því óláni að fingurbrotna í síðasta leik en hann var einmitt nýkominn til leiks á ný eftir brot á sama fingri. Þá er rétt að gefa landsliðsmanninn Rúnari Kárasyni gætur en hann leikur með Fram liðinu en er á leið í þýska boltann eftir tímabilið hér.
Bæði Akureyri og Fram fengu slæma útreið í síðustu umferð og munu því örugglega berjast af fullum krafti á fimmtudaginn því slagurinn um að verða í einu af fjórum efstu sætum deildarinn og þar með að komast í úrslitakeppnina er allsráðandi þessa dagana.
 |