Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Hörđur Fannar kunni vel viđ sig á línunni í Víkinni





19. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Öruggur sigur Akureyrar á Víkingum

Akureyri er komiđ á sigurbraut á ný međ glćsilegum sigri á Víkingum á heimavelli ţeirra síđarnefndu í kvöld. Liđiđ sýndi allar sínar bestu hliđar í dag ţar sem sterk liđsheild, barátta og leikgleđi skilađi dýrmćtum stigum í hús.

Ţađ sást langar leiđir ađ leikmenn Akureyrar komu einbeittir til leiks, vörnin var frábćr, Hafţór öflugur í markinu og skynsemin allsráđandi í sóknarleiknum sem skilađi fínum fćrum, vítaköstum og mörkum.

Akureyri komst fyrst yfir í 2-3 og hafđi örugg tök á leiknum eftir ţađ, í stöđunni 3-4 skellti Hafţór í lás og munurinn jókst hröđum skrefum. Mestur varđ munurinn sjö mörk í fyrri hálfleik 6-13 en Víkingar minnkuđu muninn í 8-13 međ tveim síđustu mörkum hálfleiksins.

Ţađ var greinilega ákveđiđ í hálfleik ađ ekkert yrđi slakađ á ţví ađ seinni hálfleikur hófst međ látum, Akureyrarsóknin skilađi hverju markinu á fćtur öđru međan ekkert gekk hjá Víkingum, Hafţór hafđi ţá algjörlega í vasanum og eftir ţrettán mínútna leik var munurinn kominn í tíu mörk 10-20 og allur vindur úr Víkingum. Hörđur Fannar var hvađ eftir annađ dauđafrír á línunni og var vel matađur af ţeim Jónatan og Árna og skilađi hverjum boltanum á fćtur öđrum í netiđ.

Rúnar tók virkan ţátt í sóknarleiknum lengst af og skorađi algjört draumamark lengst utan af velli eftir langa sókn. Ţađ má reyndar segja ađ hafi veriđ ađalsmerki liđsins í ţessum leik ađ sóknarleikurinn var yfirvegađur og árangursríkur. Munurinn hélst áfram í kringum tíu mörkin en síđustu mínútur leiksins gerđust menn full kćrulausir og skoruđu ekki mark síđustu átta mínútur leiksins á međan Víkingar gengu á lagiđ og söxuđu á forskotiđ međ síđustu fjórum mörkum leiksins sem endađi međ öruggum sigri 20-25.

Í dag kannađist mađur viđ stemminguna sem var í liđinu fyrir áramótin enda var ţađ fyrst og fremst frábćr liđsheild sem skóp ţennan sigur ţar sem menn börđust og peppuđu hvern annan upp, jafnt innan vallar sem og á bekknum. Ţađ er ekki auđvelt ađ taka neinn sérstaklega útúr en Hörđur Fannar átti sannkallađan stórleik á línunni og réđu Víkingar ekkert viđ hann.

Hafţór stóđ í markinu allan tímann og var frábćr, 19 skot varin, ţar af eitt vítakast og skorađi ađ auki eitt mark.

Mörkin dreifđust sem hér segir: Jónatan 9 (5 víti), Hörđur 6, Oddur 4, Andri og Rúnar 2 hvor, Hafţór og Árni 1 mark hvor.

Ţađ er fyrir mestu ađ liđiđ er búiđ ađ finna sigurstemminguna aftur og núgetum viđ látiđ okkur hlakka til nćsta leiks sem verđur ţó ekki fyrr en 4. mars ţegar HK kemur í heimsókn í Íţróttahöllina.

Leikurinn var í beinni lýsingu og ţar er hćgt ađ sjá ítarlega gang leiksins.

Eftir leiki kvöldsins er stađan í N1-deildinni ţannig
Nr. FélagLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Valur15933415 : 3585721:9
2. Haukar141004408 : 3525620:8
3. Fram16835445 : 439619:13
4. FH16826478 : 470818:14
5. HK16736426 : 434-817:15
6. Akureyri16718412 : 437-2515:17
7. Stjarnan163310393 : 434-419:23
8. Víkingur152112375 : 428-535:25
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson