Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Ţađ er nóg ađ gera hjá 2. flokki um helgina

20. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Leikur gegn HK á laugardag klukkan 15:30

Á morgun laugardag spila strákarnir í 2. flokki gegn HK og er leikurinn liđur í Íslandsmótinu. Spilađ verđur í íţróttahúsi Síđuskóla og hefst leikurinn klukkan 15:30. Leikurinn er ađ sjálfsögđu afar mikilvćgur, og gćti gefiđ forsmekkinn fyrir bikarúrslitaleikinn sem verđur 1. mars en ţessi sömu liđ mćtast einmitt ţar aftur.

Liđin mćttust í Kópavogi 15. nóvember og ţar fór Akureyri međ nauman sigur 30-31 og ţví algjörlega ljóst ađ ţetta eru hörkuliđ bćđi tvö.

Reyndar hefur gengi HK ekki veriđ neitt sérstakt í deildinni í vetur ţar sem ţeir sitja í 7. sćti međ 15 stig eftir 15 leiki á međan Akureyri er í 1. sćti međ 24 stig eftir 13 leiki. Reyndar er rétt ađ hafa í huga ađ HK hefur ekki alltaf mćtt međ sitt sterkasta liđ í deildina ţađ sem af er en nokkrir leikmenn ţeirra eru jú burđarásar í meistaraflokki liđsins. Ţar skal fyrst nefna góđkunningja okkar Sveinbjörn Pétursson markvörđ og einnig er skyttan Ólafur Bjarki Ragnarsson enn í 2. flokki.

Liđin mćttust tvívegis í úrslitaleikjum í fyrravor, bćđi í bikar og í deildinni og ţá fór HK međ sigur í báđum leikjum og er ţví brýnt ađ Akureyrarstrákar sýni úr hverju ţeir eru gerđir á morgun. Viđ hvetjum ađ sjálfsögđu alla til ađ mćta og styđja strákana klukkan 15:30 á laugardaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson