Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Helgin gæti farið í sögubækur Akureyrar Handboltafélags

25. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Bikarúrslitin um helgina – Rútuferð

Á sunnudaginn leikur 2. flokkur Akureyrar Handboltafélags til úrslita í bikarkeppni HSÍ. Andstæðingar okkar manna verða HK og hefst leikurinn klukkan 17:00 í Laugardalshöllinni. Á laugardaginn verða úrslitaleikir meistaraflokka karla og kvenna en á sunnudeginum spila yngri flokkarnir sína leiki.

3. flokkur Þórs er einnig í úrslitunum og mæta þeir ÍR klukkan 15:00. Stuðningsmönnum gefst kostur á að fara suður í rútu og eru nokkur laus sæti í boði fyrir aðeins 2.500 kr. báðar leiðir.

Farið verður af stað á laugardagsmorgun klukkan 10:00 frá Síðuskóla og stefnan er sett á að fara á bikarúrslitaleik karla á laugardaginn klukkan 16:00. Lagt verður af stað norður á sunnudaginn eftir leik Akureyrar, en vænta má að það verði um klukkan 19:30.

Þeir sem hafa áhuga á að tryggja sér far með rútunni geta hringt í síma 669-9636 eða sent póst á geira@vodafone.is. Reikna má með að um 15-20 sæti verði í boði og fyrstur kemur fyrstur fær.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson