 Það verður allt undir hjá þessum um helgina

| | 27. febrúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarBikarhelgin og síðan heimaleikur á miðvikudaginnÞessi helgi gæti orðið söguleg fyrir Akureyri Handboltafélag þar sem möguleiki er á að félagið vinni sinn fyrsta titil. Það eru strákarnir í 2. flokki sem leika til úrslita gegn HK í bikarkeppninni á sunnudaginn. Það er sem sé bikarhelgi framundan þar sem meistaraflokkar kvenna og karla spila á laugardaginn, FH og Stjarnan í kvennaflokki en Grótta og Valur í karlaflokki.
Á sunnudaginn eru síðan úrslitaleikir yngri flokkanna og hefst leikur Akureyrar og HK klukkan 17:00. Að vanda fara allir bikarúrslitaleikirnir fram í Laugardalshöllinni. Strákarnir hafa átt frábært tímabil í vetur, hafa unnið 16 leiki af 17, nú síðast unnu þeir væntanlega andstæðinga úr HK með átta marka mun í deildinni. Þau úrslit skipta þó engu máli, þá hefst nýr leikur og strákarnir þurfa að yfirvinna þá staðreynd að HK vann þá í tveimur úrslitaleikjum á síðasta ári, bæði í bikar og um Íslandsmeistaratitilinn.
Við erum að vonast til að geta lýst leiknum hér á síðunni á sunnudaginn en það á eftir að koma í ljós hvort það tekst.
Þá er rétt að benda á að 3. flokkur Þórs leikur sömuleiðis til úrslita og hefst þeirra leikur klukkan 15:00.
Heimaleikur meistaraflokks á miðvikudaginn Annars eru þau tíðindi að meistaraflokkur Akureyrar á heimaleik í næstu viku en þá kemur HK liðið norður. Það er rétt að ítreka að sá leikur verður á óvenjulegum tíma en leikið verður á miðvikudegi og leikurinn hefst hálftíma fyrr en venjulega eða klukkan 19:00.
Þessi leikur er einn af úrslitaleikjunum um að verða í hópi fjögurra efstu liða í deildinni og er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði liðin og ljóst að allt verður lagt í sölurnar.
Tónlistaratriðið fyrir leik annast trúbadorinn Einar Höllu og væntanlega verður fleira sér til gamans gert.  Við kynnum leikinn betur eftir helgina en bendum öllum á að taka miðvikudaginn frá.
 |