Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stöðugt ný verkefni í lífinu

10. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fjölgun hjá Herði Fannari

Hörður Fannar Sigþórsson var ekki með í leiknum í gærkvöldi enda hafði hann öðrum hnöppum að hneppa. Það voru nefnilega allar líkur á fjölgun hjá þeim skötuhjúum og því talið eðlilegast að Hörður stæði vaktina á heimavígstöðvunum. Það dró svo til tíðinda um klukkan átta í morgun en þá fæddist honum og Hafdísi myndarlegur sonur og gekk allt að óskum.

Við sendum Hödda og Hafdísi hamingjuóskir með snáðann, það verður væntanlega nóg að gera í uppeldisstörfunum á næstunni.


Spurning hvort nokkur tími gefst hjá foreldrunum til að grípa í spil á næstunni?





Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson