Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Einn stærsti leikur tímabilsins þegar Haukar koma í heimsókn

11. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri mætir Haukum í Íþróttahöllinni á föstudaginn

Næsti leikur Akureyrar er á föstudaginn þegar topplið deildarinnar Haukar koma í heimsókn. Haukarnir hafa reynst okkur erfiðir í vetur og eru eina liðið sem Akureyri hefur ekki sigrað það sem af er tímabilinu. Eftir súrt tap gegn Stjörnunni á mánudaginn eru strákarnir staðráðnir í að leggja allt í sölurnar og sýna að þeir standi jafnfætis öllum liðum á landinu.

Að þessu sinni er leikið á óvenjulegum tíma, klukkan 18:00 á föstudag og er brýnt að koma þeim skilaboðum til allra stuðningsmanna því margir halda örugglega að um hefðbundinn leiktíma sé að ræða.

Við eigum eftir að fjalla betur um leikinn hér á síðunni þegar nær dregur en þetta er næstsíðasti heimaleikur Akureyrar í deildinni að þessu sinni og nú þurfa allir að fjölmenna og styðja við bakið á strákunum og knýja fram sigur!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson