 Dóri, Ágúst og Fannar fá nóg ađ gera um helgina


| | 12. mars 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarŢrír leikir um helgina hjá 2. flokki AkureyrarŢađ verđur engin afslöppun í gangi um helgina hjá strákunum í 2. flokki ţví ţeirra bíđa ţrír útileikir og ţeir ekki af léttara taginu. Ţeir leggja af stađ í rútu upp úr hádegi og mćta helstu andstćđingum sínum FH í Kaplakrikanum klukkan 20:00. Ţetta ţýđir reyndar ađ ţeir strákar sem eru í hóp međ meistaraflokki geta ekki tekiđ ţátt í baráttunni gegn FH ţar sem meistaraflokkurinn er ađ spila hér heima gegn Haukum klukkan 18:00. En leikmannahópurinn er stór og traustur hjá 2. flokki ţannig ađ ţeir geta stillt upp öflugu liđi ţrátt fyrir ţađ.
Á laugardeginum klukkan 18:00 mćta strákarnir síđan Víkingum sem leika ađ vanda í Víkinni. Strákarnir eiga harma ađ hefna gegn Víkingum en ţeir töpuđu einmitt fyrir ţeim hér á heimavelli í fyrri umferđinni, međ einu marki. Víkingar hafa hlotiđ 22 stig úr 17 leikjum og hafa veriđ á miklu flugi í síđustu leikjum ţannig ađ ţeir verđa erfiđir heim ađ sćkja.
Á sunnudaginn er síđan ţriđji leikurinn í ferđinni en ţá mćta strákarnir Fram klukkan 13:45. Reyndar er athyglisvert ađ leikiđ verđur í Mýrinni sem er heimavöllur Stjörnunnar í Garđabćnum, en í Framheimilinu fer fram stórt mót 6. flokks drengja og leikurinn ţví fćrđur í Garđabćinn.
Viđ óskum strákunum góđs gengis í ferđinni og ađ ţeir berjist af alefli fyrir hagstćđum úrslitum í ferđinni enda er mikiđ í húfi. Deildarmeistaratitill er innan seilingar en hann gćti hćglega gengiđ ţeim úr greipum ef menn koma ekki einbeittir í verkefniđ. En viđ berum ađ sjálfsögđu fullt traust til hópsins sem klárlega gerir sitt allra besta. |