 Það var rafmögnuð spenna síðast þegar liðin mættust í Höllinni
| | 1. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarSíðasti deildarleikurinn er á sunnudaginnÁ sunnudaginn lýkur keppni í N1 deild karla og þar með gefst síðasta tækifærið til að mæta og hvetja lið Akureyrar sem tekur á móti Fram klukkan 16:00 á sunnudaginn.
Það er mikið í húfi fyrir lið Akureyrar sem ætlar sér að gulltryggja áframhaldandi sæti sitt í deildinni með sigri í leiknum. Við heitum því á alla velunnara handboltans á Akureyri að fjölmenna í Höllina á sunnudaginn og taka hraustlega á því með strákunum, ekki er seinna vænna.
Lið Fram er nú þegar búið að vinna sér sæti í úrslitakeppninni, liðin hafa mæst tvisvar í deildarkeppninni í vetur. Í fyrra skiptið þann 6. nóvember í Framhúsinu og þar sigraði Akureyri örugglega. Seinni leiknum lauk með jafntefli í hörkurimmu hér í Höllinni þar sem Fram jafnaði í leikslok.
Þjálfari Fram er Viggó Sigurðsson sem oft hefur boðið upp á dramatík á hliðarlínunni og þá eru þrír Akureyringar í leikmannahópi Fram. Það eru leikstjórnendurnir Halldór Jóhann Sigfússon sem lengst af lék með KA og Guðmundur Freyr Hermannsson sem lék með Akureyrarliðinu fyrsta tímabilið. Þriðji Akureyringurinn í Framliðinu, Magnús Stefánsson frá Fagraskógi er kominn af stað aftur eftir að hafa verið einstaklega óheppinn í vetur, fingurbrotnað tvívegis og því misst af meirihluta mótsins.
Þá er skyttan og landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason atkvæðamikill í liðinu og í síðasta leik, þegar Fram sigraði FH átti Jóhann Gunnar Einarsson stórleik en hann hefur verið að jafna sig eftir erfið meiðsl í allan vetur.
Lið Akureyrar var hársbreidd frá því að leggja stórlið Vals á útivelli um síðustu helgi og því stefnir allt í hörkuleik á sunnudaginn. Það var allt á suðupunkti undir lokin þegar liðin mættust síðast.

|