Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Alltaf gott að fá klapp á bakið - nú gerum við enn betur næsta tímabil!



15. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Besta umgjörð leikja í 15-21 umferð N1-deildarinnar

Nú í hádeginu kynnti HSÍ viðurkenningar fyrir síðasta þriðjung N1 deildarkeppninnar þ.e.a.s. umferðir 15 - 21. Akureyri Handboltafélag fékk viðurkenningu fyrir bestu umgjörð leikja sinna rétt eins og fyrir umferðir 1-7. Atli Ragnarsson gjaldkeri félagsins tók við viðurkenningunni fyrir hönd Akureyrar Handboltafélags.

Besti leikmaður umferðanna var valinn markvörður Hauka, Birkir Ívar Guðmundsson. Þjálfari umferðanna er Gunnar Magnússon sem þjálfar HK og besta dómaraparið er Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson.

Að venju var tilnefnt úrvalslið þessara umferða og er það þannig skipað:

Sigurbergur Sveinsson, Haukum - vinstri skytta
Arnór Þór Gunnarsson, Val - hægri hornamaður
Freyr Brynjarsson, Haukum - vinstri hornamaður
Einar Ingi Hrafnsson, HK - línumaður
Valdimar Fannar Þórsson, HK - miðjumaður
Bjarni Fritzson, FH - hægri skytta
Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum - markvörður.


Frábær stemming að vanda í Íþróttahöllinni

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson