Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú kemur ekkert nema sigur til greina hjá strákunum

17. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Undanúrslit gegn Víkingum á þriðjudaginn

Nú er loksins kominn botn í hvernig og hvenær undanúrslitin verða hjá 2. flokki í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Leikur Akureyrar og Víkings verður háður í Íþróttahúsi Síðuskóla þriðjudaginn 21. apríl og hefst klukkan 19:30. Sigurvegari í þessum leik mun síðan leika um titilinn gegn sigurvegaranum úr leik Selfoss og FH.

Við hvetjum því alla stuðningsmenn handbolta á Akureyri til að taka þriðjudaginn frá og koma til að standa við bakið á strákunum sem hafa staðið sig frábærlega í vetur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson