Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það mun mikið mæða á Elmari í dag

21. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Undanúrslit 2. flokks, Akureyri -Víkingur

Leikur dagsins er einn stærsti leikur Akureyrar Handboltafélags á leiktíðinni. Deildarmeistarar 2. flokks taka á móti Víkingum sem höfnuðu í 4. sæti deildarkeppninnar og sigurvegari úr leiknum fer í úrslitarimmuna gegn sigurvegara hinnar viðureignarinnar en þar mætast Selfoss og FH.

Það hefur gengið erfiðlega að tímasetja þennan leik en í gær kom loksins endanleg tímasetning og staðfest að leikurinn fer fram klukkan 19:30 í Íþróttahúsi Síðuskóla.

Það þarf ekki að hafa mörg orð um þýðingu leiksins, það er allt undir og því mikilvægt að allir stuðningsmenn strákanna komi og hvetji strákana til sigurs. Síðast þegar liðin mættust á Akureyri fóru Víkingar með sigur af hólmi 25-26 en Akureyri bætti um betur og sigraði þá á útivelli 32-34 í mars. Það er allavegana ljóst að það stefnir í hörkuleik.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson