Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Geir og strákarnir eiga stórt verkefni framundan

23. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Akureyri og FH leika um Íslandsmeistaratitilinn

Í gær fór fram undanúrslitaleikur Selfoss og FH í 2. flokki þar sem FH fór með sigur af hólmi og því ljóst að það verða Akureyri Handboltafélag og FH sem kljást um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Liðin leika tvo leiki og samanlagður árangur í þeim sker úr um hvor liðið hampar titlinum.

Fyrri leikur liðanna verður í Kaplakrika í Hafnarfirði núna á sunnudaginn klukkan 16:00 og seinni leikurinn á Akureyri á fimmtudaginn, og hefst klukkan 20:00 í Íþróttahöllinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson