Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heiðar og félagar þurfa að bretta upp ermarnar

26. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Tap í fyrri leiknum gegn FH

FH sigraði í fyrri leiknum um Íslandsmeistaratitilinn 36-30 þannig að Akureyrarstrákar eiga ærið verkefni fyrir höndum á fimmtudaginn að svara fyrir sig. Reyndar byrjaði Akureyri betur í leiknum og hafði frumkvæðið í leiknum allt upp í stöðuna 9-10 en þá tóku FH ingar kipp og skoruðu fjögur mörk í röð létu þá forystu aldrei af hendi. Í hálfleik hafði FH forystu 17-14.

Í seinni hálfleik herti FH tökin og náðu átta til níu marka mun undir lok leiksins en Akureyri klóraði í bakkann í lokin og endaði leikurinn með sex marka tapi 36-30.

Dómgæslan var Akureyrarliðinu óhagstæð og létu strákarnir það pirra sig en liðið fékk á sig fjölmarga brottrekstra sem urðu ekki til að létta þeim baráttuna.

En það er í raun aðeins hálfleikur í viðureigninni og með góðum stuðningi ætti liðið að geta snúið leiknum við þegar liðin mætast í Íþróttahöllinni klukkan 20:00 á fimmtudaginn.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson