 Guðlaugur kominn í Akureyrarbúninginn
| | 26. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarGuðlaugur Arnarsson til liðs við Akureyri HandboltafélagÍ gærkvöldi undirritaði Guðlaugur Arnarsson samning um að leika með Akureyri Handboltafélagi á næstu leiktíð. Guðlaugur, sem stendur á þrítugu, leikur sem stendur með FC. Köbenhavn en á síðasta tímabili lék hann með HK Malmö í Svíþjóð. Áður en Guðlaugur hélt utan lék hann síðast með Fylki en þar áður með Fram og Völsungi. Þá hefur Guðlaugur leikið 3 leiki með landsliði Íslands.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikill hvalreki það er fyrir Akureyri Handboltafélag að fá Guðlaug í sínar raðir en Gulli er línumaður og feikiöflugur varnarmaður.
Guðlaugur undirritaði samninginn á heimili sínu í Kaupmannahöfn, íklæddur búningi Akureyri Handboltafélag og eins og meðfylgjandi mynd frá athöfninni ber með sér tekur hann sig býsna vel í honum. Við bjóðum Guðlaug hjartanlega velkominn í klúbbinn.

 |