Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nú dugar ekkert annað en að berjast til síðasta manns

29. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Úrslitin ráðast í Höllinni á fimmtudaginn

Á morgun fimmtudag er komið að seinni úrslitaleik Akureyrar og FH um Íslandsmeistaratitil 2. flokks karla. Strákarnir eiga erfitt verkefni fyrir höndum og þurfa nauðsynlega á öflugum stuðningi áhorfenda til að þeim takist ætlunarverkefnið en það er að vinna upp sex marka forskot FH inga frá fyrri leiknum.

Leikurinn verður í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 20:00. Það er frítt á leikinn sem jafnframt er síðasti leikur tímabilsins og ljóst að strákarnir ætla að leggja allt í sölurnar til að ná Íslandsmeistaratitlinum norður yfir heiðar.

Við hvetjum alla velunnara til að koma og taka þátt í baráttunni um titilinn!

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson