Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jón Þór átti stórleik gegn FH ingum

8. maí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Silfurverðlaun á Íslandsmótinu

Það gekk ekki upp hjá strákunum í 2. flokki að krækja í Íslandsmeistaratitilinn að þessu sinni. Þeir þurftu að vinna upp sex marka forskot FH inga frá fyrri leiknum og lengi vel lifði draumurinn um að það tækist. Akureyri hafði tveggja marka forystu í upphafi seinni hálfleiks og fengu fjölmörg tækifæri til að auka muninn en það átti greinilega ekki fyrir þeim að liggja að þessu sinni. Strákarnir klúðruðu ótal dauðafærum þannig að undir lokin voru það FH ingar sem héldu haus og innyrtu sigur 30-34 á lokamínútunum.

Strákarnir voru að vonum súrir að leikslokum enda áttu þeir alla möguleika á að klára dæmið en þegar litið er yfir tímabilið er árangur liðsins frábær, silfur bæði á Íslandsmótinu og bikarkeppninni auk deildarmeistaratitils þannig að það er ljóst að við eigum hér frábært lið.

Það var líka magnað að strákarnir fengu yfir 400 áhorfendur á leikinn sem er örugglega met á 2. flokks leik hér á landi.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson