 Andri Snær er í flottu formi þessa dagna
| | 17. júní 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarFjör á opinni æfingu í gærkvöldi - myndirÍ gær þreyttu strákarnir svokallað Coopertest þar sem athugað var hvaða framförum þeir hefðu tekið á yfirstandandi æfingatímabili. Er þar skemmst frá að segja að allir sýndu miklar framfarir þannig að átökin í sumar hafa greinilega gert strákunum gott.
Andri Snær stakk alla af og kom langfyrstur í mark, Bjarni Jónasson kom næstur og síðan hver hetjan á fætur annarri.
Nýir leikmenn liðsins komu til að fylgjast með æfingunni en þeir Heimir Árnason og Guðlaugur Arnarson eru mættir á svæðið og tilbúnir til átaka þó að þeir hafi látið duga að fylgjast með að þessu sinni. Árni, Heimir, Guðlaugur og Rúnar fylgdust með atgangi strákanna á hlaupabrautinni Sömuleiðis fyldust þeir Árni og Rúnar Sigtryggssynir með en Árni glímir við smávægileg meiðsli eftir landsliðsæfingar síðustu vikur en það er ekki alvarlegt.
Eftir smápúst var strákunum skipt í tvö lið til að takast á í reiptogi. Í fyrstu umferð sigruðu þeir Bjarni, Siguróli, Ásgeir og Björn Óli þá Andra Snæ, Geir, Guðmund Hermannsson og Jónatan eftir hörkukeppni.


Það snerist síðan við í annarri umferð. Að lokum var skipt í eldra og yngra lið og fóru gömlu mennirnir með sigur af hólmi í það skiptið.
Hér er hægt að skoða fleiri myndir frá æfingunni í gær. |