Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Strákarnir vekja athygli hlaupandi um bæinn á æfingum

23. júní 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Einn góður af æfingu

Það komu upp ýmiss skondin atvik á sumaræfingum Akureyrarliðsins. Eftirfarnandi sögu fengum við senda í síðustu viku:

Kona gekk upp að leikmönnum Akureyrar handboltafélags þar sem þeir blésu mæðinni í lok æfingar. Konan þekkti greinilega Andra Snæ og gefur sig á tal við hann. Eftir að hafa rennt augum yfir æfingahópinn snýr hún sér aftur að Andra og spyr „hvaða flokkur er þetta sem þú ert að þjálfa, er þetta 2. eða 3. eða 4. flokkur?“

Það hefur greinilega ekki verið hár meðalaldurinn á þessari æfingu.

Ekki er laust við að það hafi glitt í bros hjá eldri leikmönnum, sem reyndar voru víst ekki mjög margir að þessu sinni.


Skyldi Björn vera í 3. eða 4. flokki?

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson