Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jonni og Bogga í sæluvímu

28. júní 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jonni og Bogga eignuðust dóttur á laugardaginn!

Í gær, laugardag stækkaði fjölskylda þeirra Jónatans Magnússonar og Sigurborgar Bjarnadóttur þegar þeim fæddist myndarleg dóttir. Að sögn Jonna gekk fæðingin vel og heilsast þeim mæðgum vel. Við óskum þeim hjónum hjartanlega til hamingju með stúlkuna en fyrir eiga þau soninn Magnús Dag sem verður þriggja ára í nóvember.

Það er því mikil frjósemi hjá liðsmönnum Akureyrar Handboltafélags þetta árið því fyrr á árinu eignaðist Hörður Fannar son með konu sinni og sömuleiðis fjölgaði hjá Hreini Haukssyni og hans konu.

Þá fer að styttast í erfingja hjá Siguróla Magna Sigurðssyni markverði þannig að það þarf greinilega að huga að barnagæslu á æfingum liðsins næsta vetur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson