Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur kominn með 11 mörk í þrem leikjum

1. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-19 liðið í góðum málum í Gautaborg

Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri tekur nú þátt í opna Evrópumeistaramótinu sem fer fram í Gautaborg.

Liðið er í riðli ásamt Pólverjum, Rúmenum, Sviss, Qatar og Rússum. Fyrsti leikur liðsins var gegn Pólverjum og þar fór Ísland með góðan sigur, 25-19 eftir að staðan í hálfleik var 14-8. Oddur Gretarsson skoraði 3 mörk í leiknum en annars var Ólafur Guðmundsson með 5 mörk, Heimir Óli Heimisson og Guðmundur Árni Ólafsson með 4 hvor.

Næsti leikur var gegn Rúmenum og þar vann íslenska liðið 23-18 eftir að hafa haft 11-9 forystsu í hálfleik. Oddur Gretarsson var markhæstur í leiknum með 7 mörk, þar af 2 úr vítum.

Þriðji leikurinn var síðan gegn Rússum og lauk honum með jafntefli 17-17 en einnig var jafnt í hálfleik 7-7. Oddur skoraði 1 mark gegn Rússunum.

Eftir þrjár umferðir er staðan í riðlinum sem hér segir:

Nr. LiðLeikir U J TMörkHlutfallStig-
1. Sviss330071 : 53186:0
2. Ísland321065 : 54115:1
3. Rússland311164 : 6043:3
4. Pólland310254 : 62-82:4
5. Rúmenía310265 : 75-102:4
6. Qatar300350 : 65-150:6
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson