 Guđmundur, Geir og Ásgeir spila í Finnlandi ţessa dagana


| | 23. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarErfitt hjá 17 ára landsliđinu á Ólympíuleikum ćskunnarÍslenska U-17 ára landsliđ Íslands tekur nú ţátt í Ólympíuleikum ćskunnar sem fram fer í Tampara í Finnlandi. Ţrír strákar frá Akureyri eru í hópnum, Guđmundur Hólmar Helgason, Geir Guđmundsson og Ásgeir Jóhann Kristinsson. Strákarnir eru allir ţrátt fyrir ungan aldur í ćfingahópi Akureyrar Handboltafélags og gríđarlega efnilegir. Íslenska liđiđ var í riđli međ Noregi, Króatíu og Finnlandi.
Fyrsti leikurinn var gegn Normönnum og tapađist 30-23 eftir ađ stađan í hálfleik var 13-12 fyrir Noreg. Íslenska liđiđ náđi forystu 19-18 en ţá hrundi leikur liđsins og Noregur náđi öruggri forystu 25-19 og skorađi íslenska liđiđ ekki í 13 mínútur. Mörk Íslands skoruđu: Ísak Rafnsson 5 mörk, Viggó Kristjánsson 4(4), Arnar Dađi Arnarsson 3, Magnús Magnússon 2, Pétur Júníusson 2, Leó Snćr Pétursson 2, Geir Guđmundsson 2, Arnar Birkir Hálfdánarson 1, Guđmundur Hólmar Helgason 1 og Ásgeir Jóhann Kristinsson 1.
Annar leikurinn var gegn Króatíu og tapađist hann sömuleiđis stórt, 32-25 eftir ađ Ísland hafđi leitt í hálfleik 16-12. En ţegar um 6 mínútur voru liđnar af seinni hálfleik var stađan 19-19. Ţá hrundi leikur liđsins og Króatía gekk á lagiđ og landađi öruggum sigri. Mörk Íslands: Ísak Rafnsson 7, Viggó Kristjánsson 7(3), Geir Guđmundsson 6, Pétur Júníusson 2, Guđmundur Helgason 2(1) og Arnar Dađi Arnarsson 1.
Síđasti leikur liđsins í riđlakeppninni var í gćr gegn Finnum. Finnar höfđu frumkvćđi lengst af í leiknum en jafnt var í hálfleik 18-18. Finnar náđu undirtökum í seinni hálfleik og leiddu 26-23 en íslenska liđiđ sýndi gríđarlegan karakter á lokamínútunum og náđi ađ landa sigri. Mörk Íslands skoruđu: Guđmundur Hólmar Helgason međ 9 mörk, Ísak Rafnsson 7, Geir Guđmundsson 4, Jón Oddsson 3, Viggó Kristjánsson 3(1), Magnús Magnússon 2, Arnar Birkir Hálfdánarson 2, Ţráinn Jónsson 1 og Pétur Júníusson 1.
Íslenska liđiđ hafnađi ţví í 3. sćti riđilsins og lék gegn Ţjóđverjum í dag sem urđu í 3. sćti B riđilsins. Guđmundur og Geir hafa leikiđ alla ţrjá leikina og skorađ tólf mörk hvor. Ásgeir lék hins vegar ađeins fyrsta leikinn.
Í dag lék Íslenska liđiđ gegn Ţýskalandi og tapađi ţeim leik stórt, 35-23 eftir ađ hafa veriđ undir 16-10 í hálfleik. Mörk Íslands skoruđu: Ísak Rafnsson 4, Arnar Birkir Hálfdánarson 4(2), Geir Guđmundsson 3, Leó Snćr Pétursson 3, Viggó Kristjánsson 3(1), Magnús Orri Magnússon 3, Jón Bjarki Oddsson 2 og Arnar Dađi Arnarsson 1.
Á morgun leikur liđiđ loks um 7. sćtiđ og mćtir ţá Finnlandi ađ nýju. |