Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Oddur setti sjö mörk í dag í glćsilegum sigri Íslands

29. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-19 spilar um heimsmeistaratitilinn í Túnis

Íslenska U19 ára liđiđ gerđi sér lítiđ fyrir og sigrađi Túnis 33-31 í ćsispennandi leik núna í kvöld og tryggđi sér ţar međ réttinn til ađ spila um Heimsmeistaratitilinn gegn Króötum sem sigruđu Svía 28-25 á sama tíma.

Ísland komst í 3-1 í byrjun leiks en ţá tóku Túnisar mikinn sprett og komust í 3-7 og héldu lengi fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik. Íslenska liđinu tókst ţó ađ minnka muninn niđur í eitt mark fyrir hálfleik en Túnis leiddi ţá 14-15.

Seinni hálfleikur var ćsispennandi, Túnis međ frumkvćđiđ framan af en liđin skiptust á ađ hafa forystuna seinni hlutann. Á lokaandartökum leiksins náđi Ísland ađ síga fram úr 33-30 en Túnis skorađi síđasta mark leiksins og lokatölur ţví 33-31 fyrir Ísland.

Ţar međ er Ísland komiđ í úrslitaleikinn sem verđur leikinn 31. júlí klukkan 19:30 ađ Íslenskum tíma en Túnis og Svíţjóđ leika um 3. sćtiđ og hefst sá leikur klukkan 17:30. Hćgt verđur ađ fylgjast međ gangi leiksins á heimasíđu mótsins.

Mörk Íslands: Ólafur Guđmundsson 10, Oddur Gretarsson 7, Aron Pálmason 5, Heimir Óli Heimisson, Guđmundur Árni Ólafsson og Stefán Sigurmarsson 3 mörk hver og Örn Ingi Bjarkason 2 mörk.
Arnór Stefánsson varđi 9 skot í íslenska markinu.

Hér er hćgt ađ skođa ítarlega leikskýrslu međ tölfrćđi leiksins.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson