 Ási og Anton skoruðu 5 mörk hvor gegn Kúwait í gær


| | 8. ágúst 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarU-21 árs liðið leikur við Þjóðverja í dag kl 13:30Í dag klukkan hálftvö hefst leikur Íslands og Þýskalands á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi. Eftir tvær umferðir hefur Ísland tvö stig eins og Þjóðverjar sem töpuðu óvænt fyrir Argentínu í fyrstu umferð. Hér er hægt er að fylgjast með gangi leiksins gegn Þjóðverjum.
Í gær sigraði Ísland Kúwait 34-32 eftir að hafa verið undir í hálfleik 14-17. Kúwait var sterkara í leiknum í fyrri hálfleik og þar til um 5 mínútur voru búnar af seinni hálfleik. Þá var staðan 22-16 fyrir Kúwait. Þá breytti íslenska liðið um vörn og náði hægt og rólega að minnka muninn og komst yfir þegar um 4 mínútur voru eftir. Lokamínúturnar voru æsispennandi en íslenska liðið hafði sigur að lokum.
Oddur Gretarsson var ekki í leikmannahópnum í gær en Ási og Anton skoruðu fimm mörk hvor mörk og markvarsla var sem hér segir: Rúnar Kárason 7 mörk, Anton Rúnarsson 5, Ásbjörn Friðriksson 5, Guðmundur Árni Ólafsson 4, Þröstur Þráinsson 3, Orri Freyr Gíslason 2, Bjarni Aron Þórðarson 2, Ólafur Bjarki Ragnarsson 2, Andri Heimir Friðriksson 2, Bjarki Már Gunnarsson 1 og Ólafur Gústafsson 1.
Í markinu varði Aron Rafn Eðvarsson 10 bolta og Ingvar Guðmundsson 3.
Hægt er að skoða ítarlega tölfræði leiksins hér. |