Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur kom inn í liðið á ný og setti tvö mörk

8. ágúst 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-21 níu marka tap gegn Þýskalandi í dag

Íslenska U-21 árs liðið náði sér ekki á strik í dag gegn heimsmeisturum Þýskalands og tapaði illa 32-23 og hefur þar með tapað tveim af fyrstu þrem leikjum sínum á mótinu. Jafnræði var með liðunum í upphafi og jafn á öllum tölum upp í stöðuna 5-5. Þar með sigu Þjóðverjar framúr og skoruðu síðan síðustu þrjú mörk hálfleiksins og höfðu þægilega forystu í hálfleik 17-12.

Á upphafsmínútum seinni hálfleiks gerðu Þjóðverjar síðan út um leikinn og náðu tíu marka forystu 23-13 og eftir það var nánast formsatriði að klára leikinn. Mestur varð munurinn tólf mörk en Ísland klóraði í bakkann í lokin og lauk leiknum því með níu marka tapi 32-23.

Oddur Gretarsson kom aftur inn í hópinn og skoraði tvö mörk, bæði úr vítum en íslensku mörkin dreifðust sem hér segir:
Orri Freyr Gíslason 5, Rúnar Kárason 5, Ólafur Gústafsson 5, Ólafur Bjarki Ragnarsson3, Oddur Gretarsson 2, Ásbjörn Friðriksson 1, Anton Rúnarsson 1 og Þröstur Þráinsson 1.
Í markinu varði Aron Rafn Eðvarsson 7 skot og Sveinbjörn Pétursson 4.

Hér er hægt er að skoða ítarlega tölfræði leiksins.

Næsti leikur íslenska liðsins er mánudaginn 10. ágúst kl. 15:30 gegn Argentínu.
Nánari upplýsingar um mótið finnur þú á heimasíðu mótsins með því að smella hér.

Einnig er hægt að skoða öll úrslit leikja dagsins gang þeirra sem enn eru í gangi með því að smella hér en staðan birtast í nýjum glugga og uppfærist á mínútu fresti.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson