 Oddur var atkvćđamestur Ísendinga í dag međ 6 mörk
| | 10. ágúst 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarU-21 tap tap gegn Argentínu í dagÍslendingar riđu ekki feitum hesti frá viđureigninni viđ Argentínu í dag og urđu ađ játa sig sigrađa 23-25. Argentína náđi góđum tökum á leiknum í upphafi og komust fljótlega í 2-5 og síđan jókst munurinn hćgt og rólega í 4-8 og varđ mestur 7-12 ţegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Ţá kom góđur kafli hjá íslensku strákunum sem minnkuđu muninn í eitt mark 11-12 en í hálfleik var stađan 12-13 fyrir Argentínumenn.
Íslenskur strákarnir náđu forystunni strax í upphafi seinni hálfleiks 14-13 og höfđu frumkvćđiđ lengst af ţó ađ jafnt vćri á öllum tölum allt upp í stöđuna 22-22 ţegar tćpar fimm mínútur voru eftir af leiknum en Argentína reyndist öflugri í lokin og skoruđu ţrjú mörk áđur en Íslendingar náđu ađ skora síđasta mark leiksins og lokatölur ţví 23-25.
Oddur Gretarsson var markhćstur í íslenska liđinu međ 6 mörk úr átta skotum en mörkin dreifđust sem hér segir: Oddur Gretarsson 6 (3 víti), Rúnar Kárason 5, Ásbjörn Friđriksson 5, Ólafur Gústafsson 4, Anton Rúnarsson, Bjarni Aron Ţórđarson og Orri Freyr Gíslason 1 mark hver. Í markinu varđi Aron Rafn Eđvarsson 10 bolta en Ingvar Guđmundsson náđi ekki ađ verja bolta.
Leikurinn ţróađist sem hér segir: 2-2, 2-5, 4-5, 4-8, 7-12, 12-13, 15-14, 18-18, 20-20, 22-22, 23-25.
Hér er hćgt er ađ skođa ítarlega tölfrćđi leiksins.
Vissulega eru ţessi úrslit mikil vonbrigđi og raunar frammistađan til ţessa ţar sem töluverđar vćntingar voru gerđar til liđsins. Sérstaka athygli vekur léleg nýting skyttanna í liđinu eins og best kemur fram í tölfrćđiskýrslum leikjanna
Nćsti leikur íslenska liđsins er ţriđjudaginn 11. ágúst kl. 13:30 gegn Qatar sem báru reyndar sigurorđ af Kúwait ţannig ađ ţeir eru til alls líklegir en leikurinn sker úr um hvort liđiđ hafnar í 4. sćti riđilsins. Nánari upplýsingar um mótiđ finnur ţú á heimasíđu mótsins međ ţví ađ smella hér.
Einnig er hćgt ađ skođa öll úrslit leikja dagsins gang ţeirra sem enn eru í gangi međ ţví ađ smella hér en stađan birtast í nýjum glugga og uppfćrist á mínútu fresti. |