 Það styttist í fyrstu leikina í Eimskipsbikarnum
| | 11. október 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri mætir Fjölni í 1. umferð EimskipsbikarsinsÍ dag var dregið um hvaða lið mætast í 32-liða úrslitum Eimskipsbikar karla í handknattleik. Alls tilkynntu 36 lið þátttöku þannig að fjögur lið sitja hjá í þessari fyrstu umferð. Það eru bikarmeistarar Vals, Haukar, Fram og ÍBV sem sitja hjá í fyrstu umferð.
Lið Akureyrar dróst á móti 1. deildarliði Fjölnis en umferðin á að fara fram 18. og 19. október.
Annars drógust liðin saman sem hér segir: Árborg - HK Víkingur 2 - FH ÍR 2 - HKR Grótta 2 - Stjarnan Hörður - Þróttur FH 2 - Afturelding Afturelding 2 - Selfoss KS - ÍR Stjarnan 3 - Grótta Víkingur 3 - Víkingur Fjölnir - Akureyri Stjarnan 2 - Haukar 2. |