 Það var frábær stemming á Greifanum á síðasta leik

| | 12. október 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur Hauka og Akureyrar sýndur beint á sportTV.isÞeir bregðast ekki frekar en fyrri daginn snillingarnir á sportTV.is og Greifanum, þeir ætla að sýna leik Hauka og Akureyri Handboltafélag beint á netinu líkt og í síðustu viku. Það hefur orðið að samkomulagi við veitingahúsið Greifann að sýna leikinn á stórum tjöldum í veislusalnum á 2. hæð líkt og í síðustu viku.
Leikurinn hefst klukkan 18:30 á miðvikudaginn og útsendingin væntanlega 10 mínútum áður. Það var frábær stemming á Greifanum á Valsleiknum, mæting fór fram úr björtustu vonum, c.a. 90 manns komu enda aðstæður allar hinar bestu.
Útsendingin er í miklum gæðum og því þarf öflugt netsamband til að hún njóti sín sem best. Myndgæðin voru með miklum ágætum á Greifanum þannig að við hvetjum alla til að koma og njóta leiksins í hópi annarra stuðningsmanna.
Aðgangseyririnn felst í því að áhorfendur kaupa í raun pizzuhlaðborð á afar hóflegu verði eins og kemur fram hér að neðan.
Í boði er spennandi pakki á afar hóflegu verði: leikurinn ásamt pizzahlaðborði og 0,5 lítra gosglasi á kr 1.200 fyrir 12 ára og eldri, 500 kr fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri.
Það er því upplagt að mæta á Greifann og slá saman kvöldverðinum og handboltaleiknum í beinni útsendingu.
Að sjálfsögðu verður hægt að tengjast útsendingu þeirra sportTV.is manna af heimasíðu Akureyrar Handboltafélag.
Það styttist í fyrsta heimaleik Akureyrar sem verður gegn FH fimmtudaginn 22. október klukkan 19:00. Sala á stuðningsmannakortum og ársmiðakortum er hafin og verður hægt að kaupa kortin á Greifanum meðan á Haukaleiknum stendur svo og annan varning tengdum Akureyri Handboltafélagi. Væntanlega verður hægt að kaupa þessa svörtu boli merktir AHF á miðvikudaginn.
|