 Við óskum Gulla og Oddi til hamingju með valið

| | 27. október 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarTveir fulltrúar Akureyrar í PressuliðinuÍslenska landsliðið í handknattleik undirbýr sig þessa dagana fyrir Evrópumótið sem verður í Austurríki í janúar. Liður í undirbúningunum er æfingarleikur við Pressulið íslenskra íþróttafréttamanna. Leikið verður í Laugardagshöll og hefst leikurinn hefst klukkan 19:30 á fimmtudaginn. Það verða Aron Kristjánsson, þjálfara Hauka, og Kristján Halldórsson sem munu stýra Pressuliðinu í leiknum. Það eru íþróttafréttamenn landsins sem völdu Pressuliðið en í því eru tveir leikmenn Akureyrar Handboltafélags þeir, Guðlaugur Arnarsson og Oddur Gretarsson.
Hópurinn er þannig skipaður: Markverðir: Birkir Ívar Guðmundsson - Haukar Pálmar Pétursson - FH Aðrir leikmenn: Arnór Þór Gunnarsson - Valur Björgvin Hólmgeirsson - Haukar Ernir Hrafn Arnarson - Valur Fannar Friðgeirsson - Valur Freyr Brynjarsson - Haukar Guðlaugur Arnarsson - Akureyri Haraldur Þorvarðarson - Fram Oddur Gretarsson - Akureyri Orri Freyr Gíslason - Valur Ólafur Gústafsson - FH Ragnar Hjaltested- HK Ragnar Þór Jóhannsson - Selfoss Sigurgeir Árni Ægisson - FH Valdimar Fannar Þórsson - HK. |